Ógó: Hið ótrúlega stórkostlega eftir Vignir Árnason smakksprufa
Athugið að þessi texti er eign Vignis Árnasonar og er dreift frítt í kynningarskyni fyrir söguna. Leyfilegt er þó að pósta brotið annarsstaðar ef þessi stúfur fylgir.
Látið mig endilega vita af því ef þið póstið einhversstaðar á netinu, ekki að ég sé að skerða réttindi ykkar heldur þykir mér fróðlegt að vita ef einhver áhugi er á sögunni.
1. hluti Urður
Þriðji kapítuli
Ef þú ert staddur á stað sem er kallaður Öskuhlíð og horfir í mót suðri sérðu nes þakið gráum byggingum. Þessar byggingar eru allar málaðar í mismunandi litbrigðum af gráum lit. Þó er ein undantekning frá þessari reglu en það er kirkjan sem gnæfir yfir byggingaskóginn, hún er hvít. Þó að það séu grænar hríslur inn á milli og nokkrir fölgrænir blettir, er enginn upprunaleg náttúra. Þetta er allt gert af mönnum, jafnvel steinarnir í Borgarholtinu hafa verið fluttir þangað frá öðrum stað. Þetta nes handan Reykjavíkur er Vesturbærinn í Kópavogi, þar bý ég.
Comments (0)
You don't have permission to comment on this page.